Terms of service

 

1. Um okkur

MOMO er verslun sem sérhæfir sig í fallegum og kvenlegum fatnaði.

Hjá okkur finnur þú breytt úrval af hágæða vöru í bland við stefnur og strauma hverju sinni.

2. Afhending/Afgreiðslutími

Hægt er að greiða fyrir pöntun með VISA, MASTERCARD og AMEX í greiðslugátt Borgunar, með millifærslu í heimabanka eða með greiðsluþjónustu Netgíró.

Hjá Netgíró er einnig hægt að fá vaxtalausar raðgreiðslur.

Sé varan sótt, er hægt að greiða fyrir hana við afhendingu.

Ef pöntun er greidd með millifærslu, skal leggja inn á reikning:

Reikningsnúmer: 515-26-631013

Kennitala: 631013-0230

Og senda staðfestingu á momo@momo.is

Eftir að vara hefur verið greidd, ábyrgjumst við að hún verði póstlögð næsta virka dag. Kjósi kaupandi að sækja pöntun í verslun okkar að Nóatúni 17, er hún tilbúin til afhendingar eigi síðar en næsta virka dag.

MOMO tekur ekki ábyrgð á vörunni eftir að hún hefur verið póstlögð.

3. Afhending vöru

Viðskiptavinum stendur til boða að fá sendinguna senda á næsta pósthús eða í postbox fyrir 990 kr eða í heimsendingu fyrir 1.490 kr. 

Við sendum allar vörur með þjónustu Pótsins og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar póstsins um dreyfingu og afhendingu. Skoða má skilmála þeirra á vefsíðunni www.posturinn.is 

Einnig er hægt að sækja vörur í verslun okkar að Nóatúni 17.

4. Vöruskil

14 daga skilaréttur er á öllum vörum í vefverslun, vara þarf að vera óskemmd og með áföstum merkimiðum.

Vara sem afgreidd er í vefverslun má skila gegn endurgreiðslu sé hún póstlögð innan viku  frá móttöku. Nauðsynlegt er að tilkynna vöruskil á netfangið momo@momo.is Sé vöru skilað gegn endurgreiðslu ber kaupandi allan sendingarkostnað, þ.m.t útlagðan kostnað seljanda. Að öðrum kosti er hægt að skila vöru í verslun gegn inneignarnótu innan 14 daga frá kaupum.

Skil á nærbuxum og sokkum er undanskilið þessari reglu en skv. tilmælum heilbrigðiseftirlitsins má ekki skila né skipta nærbuxum og sokkum þar sem innsiglið er rofið.

Útsöluvöru fæst ekki skilað en hægt er að skipta útsöluvöru fyrir aðra útsöluvöru. Eftir að útsölu lýkur fæst útsöluvöru ekki skipt.

5. Verð

Öll verð eru reiknuð með virðistaukaskatti – VSK.

6. Lög um varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Verslunarinnar Momo ehf á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.

7. Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.